Í aðeins 30 km fjarlægð frá Reykjavík er náttúruperlan Hveradalir, en þar á einu virkasta hverasvæði landsins stendur Skíðaskálinn. Skíðaskálinn í
Hveradölum er rómaður í hugum okkar allra fyrir rómantískt og fallegt umhverfi

Gerum verðtilboð fyrir hópa
Innifalið í verði
3ja rétta hátíðarmatseðill, dansleikur, rútuferðir.




Matseðill A


Einstök koníakslöguð sjávarréttasúpa að hætti Skíðaskálans.

Unaðslega mjúkt lamba prime, eldað af ástríðu, borið fram
með rauðvíns- og bernaisesósu, grænmeti og rjómakryddbökuðum
kartöflum.

Heit og ómótstæðileg frönsk súkkulaðiterta með rjóma og vanilluís.



Matseðill B


Reykt laxatvenna með piparrótarrjóma

Meirar og safaríkar, hunangsgljáðar kjúklingabringur
með sinnepssósu, grænmeti og rjómakryddbökuðum kartöflum.

Gómsæt og fislétt appelsínumousse Grand Marnier




Skíðaskálinn í samvinnu við ævintýraferðir bjóða upp á margvíslegar ferðir
s.s.hestaferðir, fjórhjólaferðir, gönguferðir o.s.frv. í nágrenni Skíðaskálans í Hveradölum. Skemmtileg tilbreyting fyrir vinahópa, erlenda gesti eða starfsmannafélög.

Pantið tímanlega - S. 567 20 20