Nýlega var tekið í notkun fullkomið hljóðkerfi ásamt þráðlausum mikrafón og
þráðlausri nettengingu. Fulkominn skjávarpi með sýningartjaldi og flettitafla er
einnig á staðnum og fylgir allur búnaður með í leiguverði. Sé þess óskað getum við leigt önnur tæki sem til þarf. Einnig getum við útvegað
hagstæðar rútuferðir fram og til baka og einnig tónlistarmenn með ýmsar uppákomur.
Fundargestir geta nýtt sér heita potta sem staðsettir eru við Skíðaskálann og
í samvinnu við ævintýraferðir bjóða upp á margvíslegar ferðir s.s. hestaferðir,
fjórhjólaferðir, gönguferðir o.s.frv. í nágrenni Skíðaskálans í Hveradölum.
Ef hópurinn borðar kvöldmat hjá okkur, þá þarf ekki að borga leigu.
Ef það eru óskir um eitthvað annað þá erum við opin fyrir öllum hugmyndum,
þannig að vinsamlegast verið í sambandi.
Smellið hér fyrir
matseðil í Pdf
|