Jólahlaðborð Skíðaskálans

Á föstudags- og laugardagskvöldum í nóvember og desember er innifalið í
verði; Jólahlaðborð, dansleikur, hljómsveit leikur fyrir dansi, rútuferðir
fram og til baka. Sunnudagskvöldin eru fjölskyldukvöldin okkar, þá kemur
jólasveinninn í heimsókn með glaðning handa börnunum, frítt fyrir 12 ára
og yngri í fylgd með foreldrum. Sértilboð fyrir hópa á fimmtudagskvöldum.
Tilvalið fyrir vinnustaði, klúbba og félagasamtök.

..........................


Forréttir
Síld (4 tegundir), reyktur lax, sjávarréttaljúfmeti, pastasalat,
kjúklingalifrarmús, villibráðapaté, svínasulta, hvítlauks- og rjómasoðin
lúðukæfa, kalkúnasalat m/sólþurrkuðum tómötum og fetaosti, fiskpaté.

Kaldir aðalréttir
Jólaskinka, hangikjöt, roast beef og nautatunga.

Heitir aðalréttir
Lambalæri, purusteik, kjötbollur í villibráðasósu, rauðvínssósa,
svínasósa, sykurbrúnaðar kartöflur, grænmeti og uppstúf.

Meðlæti
Hvítlaukssósa, piparrótarsósa, graflaxsósa, cumberlandsósa, remúlaði,
steiktur laukur, sykraður perlulaukur, rauðlauks- og sveppachutney,
eplasalat, ferskt salat, kartöflusalat, asíur, grænar baunir, rauðkál,
brúnkál, rauðrófur, gúrkusalat, rúgbrauð, laufabrauð,
heimabakað brauð og smjör.

Eftirréttir
Marengsterta, eplaterta, súkkulaðimús, Ris a la mande,
ís, smákökur, lagterta, þeyttur rjómi og hindberjasósa.


Frábær aðstaða fyrir smærri og stærri hópa.
Endalausir möguleikar í náttúruparadís í faðmi fjalla.



  
Smelltu hér     
fyrir matseðil í pdf

Pantið tímanlega - S. 567 20 20