Láttu okkur koma þér þægilega á óvart, Gerum verðtilboð fyrir stærri sem smærri hópa. Áratuga
reynsla í veisluþjónustu og matreiðslu.
Skíðaskálinn í Hveradölum er frábær staður til að njóta félagsskapar í fallegu umhverfi. Skíðaskálinn
hefur á að skipa fjórum mismunandi stórum veislusölum sem taka frá 50 - 170 manns.
"Gamla stofan", "Koníaksstofan" og "Arinstofan" ásamt "Betri stofunni" eru vel búnir
veislusalir.
Jólahlaðborð Skíðaskálans
Á föstudags- og laugardagskvöldum í nóvember og desember er innifalið í verði; Jólahlaðborð,
dansleikur, hljómsveit leikur fyrir dansi, rútuferðir fram og til baka. Sunnudagskvöldin eru
fjölskyldukvöldin okkar, þá kemur jólasveinninn í heimsókn með glaðning handa börnunum,
frítt fyrir 12 ára og yngri í fylgd með foreldrum. Sértilboð fyrir hópa á fmmtudagskvöldum. Tilvalið
fyrir vinnustaði, klúbba og félagasamtök.
Frábær aðstaða fyrir smærri og stærri hópa. Endalausir möguleikar
í náttúruparadís í faðmi fjalla.
|  |