Í aðeins 30 km fjarlægð frá Reykjavík er náttúruperlan Hveradalir, en þar á einu virkasta hverasvæði landsins stendur Skíðaskálinn.
Skíðaskálinn í Hveradölum er rómaður í hugum okkar allra fyrir rómantískt og fallegt umhverfi.

Skíðaskálinn í Hveradölum hefur verið sannkallað sæluhús á miðri Hellisheiði síðan
1935, þar sem hann stendur við þjóðveg 1. Sérstaða Skíðaskálans í Hveradölum
endurspeglast ekki aðeins á staðsetningunni, heldur miklu fremur í yfirbragði
hússins og samspili við gamla tímann og norræna stemningu sem gefur öllu
húsinu einkar hlýlegan og heimilislegan blæ.

í Skíðaskálanum eru fjórir mismunandi stórir veislusalir sem taka frá 50 - 170
manns. "Gamla stofan", "Koníaksstofan" og "Arinstofan" ásamt" Betri stofunni"
eru vel búnir veislusalir. Skíðaskálinn býður alþjóðlega matreiðslu ásamt því að
leggja áherslu á íslenska og þjóðlega rétti. Hertoga- og Sjávarréttahlaðborð
Skíðaskálans eru víðfræg. Matseðill hússins kemur á óvart svo og eftirréttaseðillinn.


Frábær aðstaða fyrir smærri og stærri hópa. Endalausir möguleikar
í náttúruparadís í faðmi fjalla.

Gerum verðtilboð fyrir hópa

Pantið tímanlega - S. 567 20 20