Láttu okkur koma þér þægilega á óvart, gerum verðtilboð fyrir stærri sem
smærri hópa. Áratuga reynsla í veisluþjónustu og matreiðslu.
Skíðaskálinn í Hveradölum er frábær staður til að njóta félagsskapar í
fallegu umhverfi. Skíðaskálinn hefur á að skipa fjórum mismunandi
stórum veislusölum sem taka frá 50 - 170 manns. "Gamla stofan",
"Koníaksstofan" og "Arinstofan" ásamt "Betri stofunni" eru vel
búnir veislusalir.
Matreiðslumeistarar okkar aðstoða þig við val á matseðli hvort heldur er
um aðræða hátíðarmatseðil fyrir stærri eða minni veislur eða léttan
pinnamat. Við erum sérlega stolt af glæsilegum vínlista okkar.
Og að sjálfsögðu minnum við á okkar landsfrægu kaffihlaðborð á
sunnudögum yfir sumartímann.
Frábær aðstaða fyrir smærri og stærri hópa. Endalausir möguleikar
í náttúruparadís í faðmi fjalla.
|  |