Í Skíðaskálanum er rekin alhliða veisluþjónusta með fjölbreytta matseðla og frábæra aðstöðu fyrir smærri og stærri hópa. Salir okkar taka frá 50 - 300 manns í sæti og þeir eru nefndir Gamla stofan, Koníaksstofan og Arinstofan. Umhverfið Skíðaskálans býður einnig uppá fjölbreytta möguleika með skemmtilegar gönguleiðir, hverasvæði og Hellisheiðarvirkjun á næstu grösum.
Í Skíðaskálanum er frábær aðstaða fyrir smærri og stærri hópa. Skálinn býður uppá endalausa möguleika við náttúruparadís í faðmi fjalla.